Drottning Viðmiðunarinnar

mánudagur, febrúar 13, 2006

fyrir brosvöðvana

Jói keypti sér nýjan riffil og ákvað að fara á bjarndýrsveiðar til að reyna gripinn.
Hann fór til Alaska og til að gera langa sögu stutta, sá hann þar lítinn brúnan björn og skaut hann. Hann var varla kominn að bráðinni þegar hann fann þunga krumlu á öxlinni á sér, og þegar hann sneri sér við sá hann stóran svartan björn. Svarti björninn sagði: "Þetta voru mjög slæm mistök hjá þér, björninn sem þú skaust var frændi minn. Nú eru tveir kostir í stöðunni. Annaðhvort lem ég þig til dauða, eða ég nota þig til að ...sinna þörfum mínum." Eftir nokkra umhugsun ákvað Jói að samþykkja hið síðarnefnda, og svarti björnin tók til við að hjakkast á honum.
Jafnvel þótt hann væri aumur í 2 vikur náði Jói sér furðu vel og lofaði sjálfum sér að ná fram hefndum. Hann fór aðra ferð til Alaska þar sem hann fann svarta björninn og skaut hann til bana. Tveim mínútum síðar var bankað í öxlina á honum. Í þetta skipti var það risavaxinn skógarbjörn sem stóð við hliðina á honum. Skógarbjörninn sagði: "Þetta voru slæm mistök, Jói. Þetta var frændi minn og núna hefurðu tvo valmöguleika. Annaðhvort lem ég þig til dauða eða við stundum gróft kynlíf."
Aftur hugsaði Jói sig um og ákvað að það væri betra að vera samvinnufús frekar en að vera barinn til dauða. Hann lifði það af en það tók hann þónokkra mánuði að ná sér í þetta skipti. Nú var Jói gersamlega brjálaður, þannig að hann fór aftur til Alaska, fann skógarbjörninn og gjörsamlega dældi í hann blýinu. Hann fann sælutilfinningu hríslast um sig og taldi sig nú hafa náð fram hefndum, en hann var ekki kominn langt þegar bankað var enn einu sinni í öxlina á honum. Hann sneri sér við og sá risastóran ísbjörn fyrir aftan sig. Ísbjörninn leit á hann og sagði: "Viðurkenndu það, Jói... þú kemur ekki hingað til að veiða, er það?"

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home