Drottning Viðmiðunarinnar

mánudagur, maí 22, 2006

Hvað skal gera ?

Nemendasýning eftir 2 virka daga og eina morgunstund. Semsagt, kl.16 á fimmtudag. Enn er innan við helmingur verka búinn að skila sér. Ég hef ekki nema eina eyðu til að stunda verkstjórn (og fá aðra kennara til að hjálpa mér), á morgun er fundur strax kl. 15 og þegar honum lýkur nennir varla neinn að vera lengur í skólanum, á miðvikudag er óvissuferð kennara kl. 17. Kennslu hjá mér lýkur bara en tveimur klst. fyrr. Og spurning dagsins er :
HVERNIG Á ÞETTA AÐ TAKAST ??!?? Mér er sagt að ég eigi endilega að nýta aðra kennara í að koma sýningunni upp, en á ég þá bara að rétta þeim hluti og segja þeim að hengja upp eða setja á hillur eða .... meðan ég er í kennslu ? Þarf ég ekki að vera verkstjóri ?

Og í þokkabót er hér hvít jörð.

Snön ligger vit på taken.
Endas Tomten är naken.

2 Comments:

  • 5 dl. stjórnsemi
    2 dl. dugnaður
    3,5 dl. kæruleysi
    2 bjórar

    öllu hrært saman, sett inn í ofn og lagt sig á meðan.

    Hvernig hljómar þessi uppskrift?

    LUV Laufey

    By Anonymous Nafnlaus, at 23/5/06 07:31  

  • Sú besta sem ég hef heyrt hingað til !! :-D

    By Blogger Queen of Norm, at 23/5/06 10:23  

Skrifa ummæli

<< Home